Hero background
Almenni-Lífsverk lífeyrissjóðurSL lífeyrissjóður

Almenni-Lífsverk og SL

Upplýsingar fyrir sjóðfélaga

september 2026

Sameining

Efnisyfirlit

Inngangur

Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samrunasamning um tillögu að sameiningu sjóðanna.

Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður hefja starfsemi 1. janúar 2027

Sjóðurinn verður fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir að fjárhæð 1.035 milljarðar króna miðað við stöðu eigna í lok síðasta árs.

Með sameiningu lífeyrissjóðanna er stefnt að því að styrkja grunn góðra lífeyrisréttinda með stærri sjóði sem verður betur í stakk búinn til að mæta auknum kröfum um rekstraröryggi og veita betri þjónustu. Markmiðið er jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstri sem getur stuðlað að lægri kostnaði og hærri ávöxtun fyrir sjóðfélaga.

Tillaga um sameiningu og breytingar á samþykktum verður lögð fyrir sjóðfélagafund Almenna – Lífsverks og stjórnarfund SL og fjármála- og efnahagsráðherra. Samruni sjóðanna er háður því að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum nr. 155/1998 um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.

Almenni – Lífsverk heldur sérstakan kynningarfund fyrir sjóðfélaga þriðjudaginn 15. september kl. 17:15 á Hilton Reykjavík. Tillögur um sameiningu og breytingar á samþykktum verða lagðar formlega fyrir sjóðfélagafund Almenna – Lífsverks þann 22. september nk. Sjóðfélagar kjósa síðan um tillögurnar í rafrænum kosningum dagana 22. til 24. september.

Stjórn SL tekur ákvörðun á stjórnarfundi þann 29. september og heldur kynningarfund fyrir sjóðfélaga 8. október á Hilton Reykjavík.

Samrunaferlið

Sameining um áramót

Lagt er til að sjóðirnir sameinist á grundvelli eigna og skuldbindinga þann 31. desember 2026.

Ársreikningar SL og Almenna – Lífsverks fyrir árið 2026 verða gerðir með hefðbundnum hætti og samrunaefnahagsreikningur sameinaðs sjóðs miðast við 1. janúar 2027.

Iðgjaldaskipting og ávöxtunarleiðir

Frá og með 1. janúar 2027 ávinnast ný réttindi í sameinuðum sjóði. Sjálfgefin skipting iðgjalds verður þannig að 8,5% renna í samtryggingu og 7% í séreign.

Þá verða sjö ávöxtunarleiðir í boði fyrir séreignarsparnað.

Skrifstofa

Skrifstofa sameinaðs sjóðs verður á Dalvegi 30, 2. hæð, 201 Kópavogi

Þar er góð aðstaða til að taka á móti sjóðfélögum í ráðgjöf eða á fræðslufundi.

Helstu dagsetningar í sameiningarferlinu

15. september 2026

Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga Almenna – Lífsverks

Kl. 17:15 á Hilton Reykjavík.

22.–24. september 2026

Sjóðfélagafundur Almenna – Lífsverks

Tillögur um sameiningu og breytingar á samþykktum kynntar og lagðar fram til atkvæðagreiðslu.

Sjóðfélagar kjósa um tillögur í rafrænni kosningu. Niðurstöður kosninga kynntar síðdegis 24. september.

29. september 2026

Stjórnarfundur SL

Tillögur um breytingar á samþykktum.

8. október 2026

Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga SL

Kl. 17:15 á Hilton Reykjavík.

31. desember 2026

Áramót. Eldri sjóðir gerðir upp.

1. janúar 2027

Sameinaður sjóður hefur störf.

14. apríl 2027

Aðalfundur/Ársfundur (tímasetning óstaðfest)

Lokaársfundur SL.

Ársfundur sameinaðs sjóðs.

Ákvörðunarfundir

SL lífeyrissjóður

Breytingar á samþykktum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda eru í höndum stjórnar sjóðsins og þurfa þær staðfestingu ráðherra að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Stjórnarfundur SL verður haldinn 29. september.

Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga

Dagsetning:

8. október 2026 kl. 17:15

Staður:

Hilton Reykjavík

Streymi:

Já, á sl.is

Gögn:

Kynning á samþykktabreytingum SL vegna sameiningar við Almenna – Lífsverk. Breytingar á samþykktum verða birtar eftir stjórnarfund SL þann 29. september 2026.

Önnur skjöl:

Samrunasamningur SL og Almenna – Lífsverks dags. 8.7.2026.

Ákvörðun stjórnar

Stjórn SL tekur afstöðu til tillagna um breytingar á samþykktum á stjórnarfundi 29. september 2026. Breytingarnar þurfa staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra.

Staðfesting

Samþykktar breytingar eru sendar fjármála- og efnahagsráðherra til staðfestingar að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins.

Almenni – Lífsverk lífeyrissjóður

Til þess að sameinast öðrum lífeyrissjóði þarf að breyta samþykktum. Tillaga þess efnis verður lögð fyrir sjóðfélagafund og borin upp í rafrænni atkvæðagreiðslu. Tveir þriðju greiddra atkvæða þurfa að samþykkja breytingar.

Sjóðfélagafundur

Dagsetning:

22. september 2026 kl. 17:15

Staður:

Hilton Reykjavík, salur H

Streymi:

Já, á almenni-lifsverk.is

Tillögur og gögn:

Tillögur um breytingar á samþykktum vegna tillögu stjórnar um sameiningu við SL lífeyrissjóð.

Önnur skjöl:

Samrunasamningur SL og Almenna – Lífsverks dags. 8.7.2026.

Rafræn atkvæðagreiðsla

Hefst

22. september kl. 18:00

Lýkur

24. september kl. 16:00

Framhaldsfundur

24. september 2026 kl. 17:15 – niðurstaða atkvæðagreiðslu.

Staður: Dalvegur 30, 2. hæð

Streymi: Já, á almenni-lifsverk.is

Af hverju sameining?

Sterkari saman, stærri sjóður

Með sameiningu Almenna – Lífsverks og SL yrði til fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins. Markmiðið með sameiningunni er að styrkja rekstur sjóðsins, bæta þjónustu við sjóðfélaga og ná fram stærðar- og kostnaðarhagkvæmni sem geti skilað sér í lægri kostnaði og betri afkomu til lengri tíma.

Sjóðfélagahóparnir falla vel saman

Örorkutíðni er almennt lág, þótt hún sé nokkru hærri hjá SL. Tekið verður tillit til mismunar við jöfnun tryggingafræðilegrar stöðu sjóðanna.

Við það mat þarf meðal annars að horfa til lýðfræðilegra þátta, svo sem aldurs- og kynjasamsetningar, dánar- og örorkulíkna og áhrifa þeirra á framtíðarréttindi og skuldbindingar sjóðsins.

Hagræðing

Sameiningin skapar tækifæri til rekstrarhagræðingar. Með einum sjóði í stað tveggja má nýta betur kostnaðarliði og í einhverjum tilvikum getur tvöfaldur kostnaður orðið að einföldum.

Þannig getur stærri rekstrareining lækkað kostnað á hvern sjóðfélaga og nýtt fjármuni sjóðsins betur. Markmið samrunans er sérstaklega að ná fram rekstrarhagræði sem geti stuðlað að lægri kostnaði.

Styrking

Stærri sjóður verður betur í stakk búinn til að mæta sívaxandi kröfum um rekstraröryggi, áhættustýringu og stjórnarhætti. Á undanförnum árum hafa kröfur meðal annars aukist á sviði persónuverndar, varna gegn peningaþvætti, sjálfbærni, upplýsingatækni og netöryggis. Sameining gerir kleift að dreifa kostnaði vegna þessara verkefna á stærri rekstur og byggja upp meiri sérþekkingu innan sjóðsins.

Sameinaður sjóður getur jafnframt styrkt þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga með öflugri innviðum, meiri sérhæfingu og aukinni getu til að þróa stafræna þjónustu.

Fjárfestingar og eignastýring

Stærri sjóður hefur jafnframt sterkari samningsstöðu gagnvart eignastýringarfyrirtækjum og öðrum mótaðilum á fjármálamarkaði. Það getur skilað sér í hagstæðari kjörum, lægri þóknunum og betri aðgangi að fjárfestingarkostum. Þetta á bæði við um erlendar fjárfestingar, sem að mestu eru gerðar í gegnum verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði, og einnig innlenda fjárfestingarkosti þar sem gjaldtaka og aðgengi getur ráðist af umfangi fjárfestingarinnar.

Stærð sjóðsins getur einnig aukið svigrúm í eignastýringu. Stærra eignasafn getur auðveldað áhættudreifingu, veitt aðgang að fleiri fjárfestingarkostum og gert sjóðnum kleift að byggja upp meiri sérþekkingu á einstökum eignaflokkum.

Sameinaður sjóður

Hagstæð lífeyrisréttindi

Sameinaður sjóður stefnir að því að bjóða hagstæð lífeyrisréttindi sem byggja á samspili samtryggingar og séreignar.

Lágmarksiðgjald skiptist þannig:

8,5% af launum greiðist í samtryggingarsjóð

7% af launum greiðist í séreignarsjóð

Iðgjald í samtryggingarsjóð tryggir ellilífeyri til æviloka og áfallalífeyri til sjóðfélaga og fjölskyldu (örorku-, maka- og barnalífeyri) við örorku eða fráfall.

Iðgjald í séreignarsjóð eykur sveigjanleika við töku eftirlauna og erfist við fráfall sjóðfélaga.

Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir

Sameinaður sjóður vill bjóða sjóðfélögum val um fjölbreyttar ávöxtunarleiðir með mismunandi fjárfestingarstefnu og eignaflokka fyrir séreignarsparnað.

Markmiðið er að sjóðfélagar geti nýtt sér stærð sjóðsins og fengið aðgang að fagfjárfestakjörum.

Úrvalsþjónusta

Sameinaður sjóður leggur áherslu á úrvalsþjónustu og ráðgjöf fyrir sjóðfélaga. Kjarninn í þjónustustefnu sjóðsins er að veita góðar upplýsingar til sjóðfélaga.

Sjóðurinn vill að sjóðfélagar hafi aðgang á Mínum síðum að ítarlegum upplýsingum um réttindi í samtryggingarsjóði og inneign í séreignarsjóði. Þar geta sjóðfélagar fylgst með sparnaði sínum og metið hvert stefnir.

Sjóðurinn vill veita góðar upplýsingar um lífeyrismál og starfsemi sjóðsins og leggur áherslu á sundurliðaðar upplýsingar um ávöxtunarleiðir til þess að sjóðfélagar geti tekið upplýstar ákvarðanir um val á ávöxtunarleið.

Stjórn, lýðræði og atkvæðisréttur

Í sameinuðum sjóði munu eingöngu sjóðfélagar sitja í stjórn og verða þeir kosnir í rafrænni kosningu meðal sjóðfélaga. Til framtíðar er stefnt að því að stjórn verði skipuð sjö sjóðfélögum. Við sameiningu renna hins vegar núverandi stjórnir saman og verða stjórnarmenn því alls 15 fyrstu fjóra mánuðina. Að þeim tíma loknum fækkar í níu og árið síðar eða frá vormánuðum 2028 verður stjórn skipuð sjö sjóðfélögum.

Atkvæðisréttur í sameinuðum sjóði mun ráðast af inneign í séreignarsjóði og hlutfallslegri inneign í samtryggingarsjóði.

Réttindi í samtryggingarsjóði

Eldri (áunnin) réttindi

Við samrunann færast áunnin réttindi sjóðfélaga í sameinaðan samtryggingarsjóð miðað við 1. janúar 2027. Sjóðfélagar halda því öllum áunnum réttindum en ný réttindi ávinnast samkvæmt samþykktum sameinaðs sjóðs frá og með 1. janúar 2027.

Mikilvægt fyrir sjóðfélaga SL:

Sjóðfélagar SL hafa val til 25. júní 2027 að umbreyta 25% af áunnum ellilífeyrisréttindum sem flytjast í sameinaðan sjóð í inneign í séreignarsjóði. Sjá nánar hér

Áður en samtryggingarsjóðir Almenna – Lífsverks og SL sameinast verður tryggingafræðileg staða þeirra jöfnuð miðað við sömu tryggingafræðilegu forsendur og mat á eignum. Staða sjóðanna er svipuð en jöfnun getur haft óveruleg áhrif á áunnin réttindi í öðrum hvorum sjóðnum. Farið verður ítarlega yfir tryggingafræðilega stöðu og fyrirkomulag jöfnunar á sjóðfélagafundum sjóðanna.

Framtíðarréttindi

Með greiðslu í sameinaðan sjóð ávinna sjóðfélagar sér rétt á ellilífeyri til æviloka og áfallalífeyri (örorku-, maka- og barnalífeyrir). Iðgjald greitt í séreignarsjóð myndar inneign sem er laus til úttektar við 60 ára aldur og erfist við fráfall sjóðfélaga.

Ellilífeyrir er greiddur frá 60-80 ára aldri til æviloka. Áfallalífeyrir (örorku-, maka- og barnalífeyrir) er greiddur við örorku eða fráfall sjóðfélaga.

Engin breyting verður á ávinnslu réttinda í samtryggingarsjóði fyrir sjóðfélaga Almenna – Lífsverks en framtíðarréttindi breytast hjá sjóðfélögum SL.

Breytingar fyrir sjóðfélaga SL

Makalífeyrir til framtíðar lækkar

Fullur makalífeyrir sem ávinnst í sameinuðum sjóði er 50% af örorkulífeyri og er greiddur í 2,5 ár. Í SL var makalífeyrir 50% af örorkulífeyri og greiddur í 4 ár og 25% í þrjú ár eftir það.

Í staðinn hækkar iðgjald í séreignarsjóði sem erfist við fráfall sjóðfélaga.

Barnalífeyrir breytist

Barnalífeyrir verður greiddur úr samtryggingarsjóði til barna sem sjóðfélagi, sem er óvinnufær eða látinn, hefur haft á framfæri. Greiðslur ná til 20 ára aldurs barns sjóðfélaga. Í SL hefur barnalífeyrir verið greiddur til 22 ára aldurs barns.

Barnalífeyrir er föst fjárhæð á mánuði sem er verðtryggð samkvæmt vísitölu neysluverðs. Í ágúst 2026 nemur fjárhæðin 53.000 kr. á mánuði. Ef barn látins sjóðfélaga á hvorki foreldri né kjörforeldri á lífi er greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.

Aðrar breytingar

Meiri séreign

Með sameiningunni eykst vægi séreignar sem skapar meiri sveigjanleika, þó á móti lækki makalífeyrisréttindi.

Sjóðfélagar SL fá val um að umbreyta 25% af áunnum ellilífeyrisréttindum í séreign, sem leiðir til stærra hlutfalls erfanlegrar séreignar og eykur sveigjanleika við töku eftirlauna.

Sjá nánar hér

Aukið val um ávöxtun séreignar

Fleiri ávöxtunarleiðir verða í boði fyrir séreignarsparnað eða samtals sjö.

Sjá nánar hér

Betri sjóðfélagavefur

Nýr sjóðfélagavefur býður upp á meiri upplýsingar, reiknivélar, vali á ávöxtunarleiðum og stýringu á útgreiðslu séreignar.

Sjá nánar hér

Tvöföld lífeyrisgreiðsla

Í sameinuðum lífeyrissjóði verður lífeyrir greiddur út fyrirfram í byrjun mánaðar.

Sjóðfélagar í SL sem eru á eftirágreiddum lífeyri fá tvöfalda lífeyrisgreiðslu við sameininguna en í staðinn fellur niður greiðsla eftir andlát.

Umbreytingartímabil: 1. janúar – 25. júní 2027

Umbreyting ellilífeyrisréttinda í séreign

Tímabundin heimild til umbreytingar

Sjóðfélagar SL lífeyrissjóðs hafa tímabundna heimild til að umbreyta 25% af áunnum ellilífeyrisréttindum sem flytjast í sameinaðan sjóð í inneign í séreignarsjóði hjá sameinuðum lífeyrissjóði. Tímabil heimildar nær frá 1. janúar 2027 til 25. júní 2027 og miðast við stöðu áunninna ellilífeyrisréttinda í lok tímabilsins.

Með umbreytingu geta sjóðfélagar breytt ellilífeyrisréttindum eins og þeir hefðu greitt í sameinaðan sjóð frá upphafi. Réttur til ævilangs ellilífeyris lækkar en í staðinn eignast sjóðfélagi inneign í séreignarsjóði sem er laus til útborgunar að eigin vali frá 60 ára aldri.

Dæmi um umbreytingu

Áunnin réttindi

100.000 kr.

á mánuði frá 67 ára aldri

Eftir umbreytingu

75.000 kr.

á mánuði frá 67 ára aldri

Inneign í séreignarsjóði eftir aldri við umbreytingu

Í milljónum króna – laus til úttektar frá 60 ára aldri

Inneign í séreignarsjóði eftir aldri, í milljónum króna
AldurInneign í milljónum, laus frá 60 ára aldri
30 ára1,2
40 ára1,7
50 ára2,4
60 ára3,3
70 ára3,9

Séreignarsjóður

Við samruna munu ávöxtunarleiðir séreignarsjóðs SL sameinast leiðum í séreignarsjóði sameinaðs sjóðs á eftirfarandi hátt

Sameining ávöxtunarleiða

Söfnunarleið 1
Skuldabréfasafn
Söfnunarleið 2
Ævisafn II
Söfnunarleið 3
Ævisafn I

Eftir sameiningu verða alls sjö ávöxtunarleiðir í séreignarsjóði í boði fyrir sjóðfélaga sameinaðs sjóðs. Sjóðfélögum verður kynnt fyrirkomulag valkosta og þeim gefinn kostur á að velja þá ávöxtunarleið sem inneign þeirra færist í eftir sameininguna, í samræmi við reglur og samþykktir sameinaðs sjóðs.

Ef sjóðfélagi SL velur ekki ávöxtunarleið við sameiningu mun inneign hans í séreignarsjóði flytjast sjálfkrafa á grundvelli þess sem hér að ofan getur.

Sjóðfélögum og rétthöfum í ofangreindum ávöxtunarleiðum verður jafnframt heimilt að færa inneign, að hluta eða í heild, milli annarra ávöxtunarleiða sameinaðs sjóðs án kostnaðar allt til 25. júní 2027.

Um ávöxtunarleiðir í sameinuðum sjóði

Sjóðfélagar geta valið á milli sjö stakra ávöxtunarleiða og Ævileiðarinnar þar sem inneign færist milli safna eftir aldri.

Aldurstengdar ávöxtunarleiðir

  • Ævisöfn I, II og III eru blönduð verðbréfasöfn með skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum. Eignasamsetning safnanna er mismunandi og sjóðfélögum ráðlagt að greiða í söfnin eftir aldri þannig að vægi skuldabréfa aukist með aldrinum.
  • Í Ævileiðinni er inneign flutt milli ævisafnanna eftir aldri.

Aðrar ávöxtunarleiðir

Erlent verðbréfasafn

Fjárfestir um 70% í erlendum hlutabréfum og um 30% í erlendum skuldabréfum.

Innlánasafnið

Fjárfestir eingöngu í innlánum.

Ríkissafn

Fjárfestir í ríkisskuldabréfum og innlánum.

Skuldabréfasafnið

Fjárfestir í vel dreifðu innlendu skuldabréfasafni.

Mínar síður

Sjóðfélagavefur

Almenni – Lífsverk lífeyrissjóður hefur á undanförnum árum lagt bæði metnað og fjármuni í þróun sjóðfélagavefs, sem býður upp á ítarlegar upplýsingar og stjórnborð þar sem sjóðfélagar geta stýrt eigin lífeyrismálum. Sá vefur verður grunnurinn að „Mínum síðum" sjóðfélaga í sameinuðum sjóði.

Ítarlegar upplýsingar

Á sjóðfélagavefnum má finna greinargóðar upplýsingar um inneign, réttindi og hreyfingar, settar fram á myndrænan og aðgengilegan hátt. Þar geta sjóðfélagar fylgst með þróun réttinda sinna og inneignar og jafnframt stýrt eigin málum með einföldum og notendavænum hætti.

Gagnvirkar reiknivélar

Vefurinn býður einnig upp á gagnvirkar reiknivélar sem gera sjóðfélögum kleift að setja inn sínar eigin forsendur og móta persónulega áætlun um eftirlaun. Þannig er hægt að sjá áhrif mismunandi launaþróunar, iðgjaldahlutfalla, ávöxtunar, aldurs við töku lífeyris og úttektartíma á væntanleg eftirlaun.

Val um ávöxtunarleið

Sjóðfélagar geta með auðveldum hætti breytt ávöxtunarleið séreignarsparnaðar, bæði fyrir framtíðariðgjöld eða breytt eignasamsetningu núverandi inneignar.

Umsóknir

Notendur sjóðfélagavefsins geta gert samning um viðbótarlífeyrissparnað rafrænt. Einnig er hægt að sækja um úttekt og lífeyri rafrænt og fylgjast með stöðu umsóknarinnar.

Útborgun séreignar

Fyrir þá sem eru komnir með útgreiðslur er í boði sérhannað stjórnborð þar sem hægt er að sjá yfirlit yfir greiðslur, stýra útgreiðslum séreignar og nálgast allar helstu upplýsingar á einum stað.

Lánavefur

Sameinaður sjóður býður aðgang að sérstökum lánavef til að einfalda aðgengi sjóðfélaga að upplýsingum um sjóðfélagalán og aðgerðum sem tengjast þeim. Á lánavefnum er m.a. hægt að sækja um lán, hlaða inn öllum gögnum sem viðkemur lánum og fylgjast með afgreiðslu þeirra. Auk þess er hægt að greiða aukalega inn á lán á vefnum.

Athugið: Allt ferlið er öruggt og aðgengilegt með rafrænum skilríkjum.

Spurt og svarað

Hér má finna svör við algengum spurningum um sameiningu SL og Almenna – Lífsverks

Sameiningin er lögð til til að byggja upp stærri og öflugri lífeyrissjóð, auka hagkvæmni í rekstri og styrkja þjónustu og rekstur til framtíðar.

Með sameiginlegum rekstri má draga úr tvíverknaði, nýta kerfi og mannauð betur og dreifa föstum kostnaði á stærri sjóð.

Í sameinuðum sjóði sitja eingöngu sjóðfélagar í stjórn, kosnir rafrænt.

Stjórnin verður fyrst 15 manna
Fækkar í níu eftir fjóra mánuði
Verður sjö manna frá vori 2028

Sjóðfélagar hafa aðgang að sjóðfélagavef með ítarlegum upplýsingum um inneign og réttindi og stjórnborði þar sem sjóðfélagar geta stýrt eigin lífeyrismálum.

Sameiningin skapar tækifæri til að efla stafræna þjónustu, þróa lausnir hraðar og bjóða sjóðfélögum einfaldara og skilvirkara aðgengi að upplýsingum og þjónustu.

Markmiðið er að þjónustan verði áfram persónuleg og aðgengileg, en jafnframt öflugri með stærra þjónustuteymi og betri stafrænum lausnum.

Sjóðfélagalán verða áfram hluti af þjónustu sjóðsins. Skilmálar og lánareglur sameinaðs sjóðs verða ákveðnar samkvæmt reglum hans.

Uppsöfnuð lífeyrisréttindi sjóðfélaga haldast.

Framtíðarréttindi ráðast af samþykktum og réttindakerfi sameinaðs sjóðs eftir sameiningu.

Nei. Sjóðfélagahóparnir falla vel saman og tekið verður tillit til mismunar á örorkutíðni og öðrum lýðfræðilegum þáttum við jöfnun tryggingafræðilegrar stöðu, með það að markmiði að framtíðarréttindi breytist ekki vegna sameiningarinnar.

Nei, það verður ekki hægt. Virkum sjóðfélögum SL sem greiða til jafnrar réttindaávinnslu verða reiknuð uppbótarréttindi til að koma til móts við að þeir geti ekki áunnið sér réttindi með þeim hætti til framtíðar.